Algengar Spurningar

Hvernig fæ ég afhent ?

Varan er afhent á upphafsdegi leigunnar. Hægt er að sækja vöru á Grenidal 2A á tímanum sem þú valdir í bókun. ( 7713866).

Ef þú valdir heimsendingu þá er heimsent á upphafsdegi leigu á milli 12:00 til 20:00 við sendum skilaboð degi áður með nákvæmari tímasetningu.

Nánari upplýsingar í skilmálunum.

Hvenar fæ ég vöruna?

Afhent er á upphafsdegi bókunar. Ef þú þarft vöruna að nóttu til eða fyrr þá þarf einnig að bóka daginn áður.

Sama gildir með skil. Skil á vörum er á lokadegi bókunar eða fyrir kl.20. Ef þörf er á lengri skilafrest þarf að bóka auka dag.

Ef vandamál koma upp varðandi bókun er hægt að hafa samband í síma 7713866 / 8945608 eða í tölvupósti travelbabyifo@gmail.com .

Hvernig skila ég vörunni

Hægt er að skila vörunum á Grenidal 2A milli 12:00 til 20:00 Best er að hringja á undan sér í 7713866 / 8945608

Athugið ef þessi tími hentar ekki til að skila vöru, er hægt að hafa samband við okkur og við reynum að taka á móti vörum á öðrum tíma.

Breyta eða Hætta við leigu

Þú getur breytt og hætt við pöntun án endurgjalds 7 dögum fyrir bókun. til að breyta bókunum innan við 7 dögum fyrir bókunar tíma er best að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst travelbabyifo@gmail.com.

Til að hætta við eða breyta  bókun skal viðskiptavinur hafa samband við okkur á travelbabyifo@gmail.com, Tilkynna okkur um afbókun eða breytingar. 

Breytingar á bókun er hægt að skoða ef lager leyfir með tilliti til leigu til annara viðskiptavina. 

Viðskiptavinir geta breytt eða afbókað án endurgjalds með 7 daga fyrirvara fyrir upphafsdag leigu og eiga þá rétt á fullri endurgreiðslu.

 Viðskiptavinur sem ætlar að breyta bókun með styttri fyrirvara en 7 daga hefur samband við travelbabyifo@gmail.com og hvert tilfelli er skoðað. 

Afbókarnir eftir 7 daga er ekki hægt að fá endurgreiðslu á leigugjaldi. 

Ef viðskiptavinur sækir ekki vöru innan klukkstundar frá bókuðum tíma dæmum við bókunum sem No show bókun og missir viðskiptavinur rétt á vörunni. 

Í þeim tilfellum þá á viðskiptavinur ekki rétt á endurgreiðslu.

Leigutími

Viðskiptavinur sem sér ekki fram á að geta skilað Travelbaby vörunni á umsömdum tíma skal láta vita án tafar. 

Í slíkum tilfellum er möguleiki að framlengja og þá Travelbaby að samþykkja og er háð lagerstöðu gagnvart útleigu til annara viðskiptavina.  

Þegar samkomulag um framlengingu á leigu fær viðskiptavinur reikning í tölvupóst sem þarf að opna og  sem þarf að greiða án tafar. Viðskiptavinur þarf að greiða fyrir þá daga á dagsverð sem kemur fram á heimsíðu Travelbaby ( Travelbaby.is ) og á hann ekki rétt á að fá auka daga á sama verði og þegar  upphaflegt leigutímabil var bókað.

Ef ekkert samkomulag hefur náðst eða leigjandi gerir Travelbaby lætur ekki vita um töf á skil á vörum bætist við dagsektir sem samsvarar leiguverði sem um ræðir miðað við eins dags leigu, fyrir hvern sem líður yfir umfram umsamin leigutíma þar til leigjandi hefur skilað vörunni.

Ef Travelbaby hefur ekki verið tilkynnt um töf á skilum og vörunni ekki skilað innan þriggja daga frá lokadegi leigutímabilsins áskilur Travelbaby sér rétt til þess að innheimat fullt söluandvirði vörunnar. Eftir það telst leigjandi vera eigandi vöru

 

Flugfélög

Ferðakerrunar okkar eru "cabin approved" hjá öllum betri flugfélögum. En hafðu samband við þitt flugfélag og athugaðu hvernig reglur eru. En annars eru kerrunar okkur einnig velkomnar í farangursgeymslu í pokanum sem fylgir þeim.

Hvað gerist ef leiguvara skemmist eða týnist?

Ef vara týnist eða skemmist ber að tilkynna Travelbaby án tafar, svo getum gert ráðstafarnir fyrir næstu leigu. 

Ef vörunni er skilað í slæmu ástandi, tildæmis brotinn eða skemmdri verður greiðslukort rukkað fyrir heildarverð vörunnar. 

Ef vörunni er stolið eða týnt þá er greiðslukortið rukkað fyrir heildarverð vörunnar. 

Travelbaby gerir allt til að lágmarka kostnað fyrir viðskiptavini og munu ávallt leita leiða til að laga og fá varahluti fyrir skemmda vörur ef fáanlegir. og mun það bætast við heildarverð leigunnar. 

Ef vörunni er skilað skítugri með blettum sem eru fastir eða ómögulegir að ná úr og eða lykt eins og tildæmis reykingarlykt er rukkað 6500kr aukagjald. 

Travelbaby ber enga ábyrgð á hönnunargöllum og framleiðslugöllum, né ófullnægjandi viðvörunarmerkingum framleiðenda. Viðskiptavini ber að kynna sér vöruna áður en hún er notuð. 

Í þeim tilfellum sem kæmi slys eða meiðsli vegna  vöru þótt að hafi verið farið eftir notkunarleiðbeiningum framleiðenda ber Travelbaby enga ábyrg

Lögaðili

Travelbaby ehf

KT: 511223-0320                          VSK:151238

Sími 7713866/8945608

Grenidalur 2A 260 Reykjanesbær 

Afhending 24/7

Því miður er skrifstofan okkar einungis opin á daginn. Unnið er að því að finna samstarfsaðila til að geta afhent 24/7

EN ef þú átt erfitt með að sækja/skila á degi til þá vinsamlegast hafðu samband við okkur í síma eða travelbabyifo@gmail.com